Upplýsingar um AI og pörun single.is
Útgáfa og gildisdagur: 11. ágúst 2026
Stutta útgáfan
Grunnpörun single.is notar fyrirfram skilgreindar reglur. Ef báðir aðilar veita sérstakt, valfrjálst samþykki getur Google Gemini borið saman dulnefnd svaramynstur og gefið ráðgefandi skor og stutta skýringu. Gemini getur einnig raðað opinberum staða- og tímatillögum. Starfsmaður Papaya tekur endanlega ákvörðun um hvort kynning er send og notendur ákveða sjálfir hvort þeir samþykkja hana.
Hvað er sent
Við pörun: spurningalyklar, valkostir, forgangsröðun og reglubundið grunnmat tveggja aðila.
Við staða-/tímaráðgjöf: opinber staðanöfn og heimilisföng, einkunnir, tegund stefnumóts og mögulegir tímar.
Hvað er ekki sent
Nafn, kennitala, fæðingardagur, aldur, prófílauðkenni, netfang, sími, póstnúmer, myndir, æviágrip, skilaboð, öryggistilkynningar og stjórnendaglósur eru ekki send Gemini í þessum tilgangi.
Stjórn og réttindi
- AI-val er ekki forvalið og hefur ekki áhrif á aðgang að reglubundinni pörun.
- Báðir aðilar verða að hafa virkt samþykki áður en pörunargögn fara til Gemini.
- Samþykki má afturkalla í stillingum; tengdum AI-mötum er þá eytt.
- AI-úttak er ráðgefandi, getur verið rangt og má ekki túlka sem staðreynd um einstakling.
- Hægt er að óska eftir almennri skýringu eða koma athugasemd á framfæri á
single@single.is.
Beiðnir eru sendar með store:false, engin valfrjáls þjálfunar-/loggdeiling er virkjuð af Papaya og greidd Gemini-þjónusta er notuð fyrir EES. Takmörkuð vinnsla Google vegna öryggis, misnotkunarvarna eða lagaskyldu getur engu að síður átt sér stað samkvæmt gildandi skilmálum.